<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, mars 16, 2006

Ýmislegt 

Það er nú ýmislegt búið að ganga á seinustu daga.
Ég er að fara í að láta skola út úr hausnum á mér á morgun. En það hittist svo á að á morgun er líka Árshátíð LBHI. Allt búið að vera á hvolfi hérna í vinnunni út af því. Og í miðju stressinu þá eru einhverjir hálv.... sem klippa í sundur ljósleiðara í Reykjavík og því verður sambandslaust hérna á Hvanneyri :(
En þetta gerði bara það hjá mér að ég er búin að kveikja á kæruleysinu.
Hlakka bara til, en veit auðvitað ekkert hvernig ég verð eftir þessa meðferð. Vonandi bara hress.

Annars gengur bara þokkalega hjá mér. En í veikindunum er ég samt búin að missa 7 kg. Vonandi er það mest spik ekki vöðvar.

Annars set ég hérna inn eitthvað sem var á síðunni hjá henni Sigrúnu. Svarið þessu ef ykkur sýnist.

01. Hver ert þú?
02. Erum við vinir?
03. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
04. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
05. Lýstu mér í einu orði.
06. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
07. Lýst þér ennþá þannig á mig?
08. Hvað minnir þig á mig?
09. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
10. Hversu vel þekkiru mig?
11. Hvenær sástu mig síðast?
12. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
13. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig

Audios Vigdís

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?