<$BlogRSDURL$>

fimmtudagur, febrúar 28, 2008

Farin að bíða eftir því að byrja... 

Jæja lífið heldur áfram.

Skóli - Vinna - Sofa

Svona líða dagarnir áfram og það er ótrúlegt en satt alveg að verða kominn mars. Enda er sólin farin að skýna á milli éljana á áætlunarferðum mínum milli Himnaríkis og Kringlunnar. Þessar ferðir hafa verið mun fleiri en ég ætlaði í byrjun annar. Hópverkefni eru ekki í uppáhaldi hjá mér. Þó svo að Bjarki hafi nú að mestu leiti bjargað mér í verkefninu í upplýstum leitaraðferðum. En síðustu tvær vikurnar hafa liðið 3 dagar sem ég hef ekki komið í skólann. Og þá eru helgarnar meðtaldar. Þannig að eins og er þá óska ég eftir fleiri klukkutímum í sólarhringinn fyrir svefn. Ég virka bara ekki án svefns. Sem dæmi um það þá er ég farin að finna til í ýmsum gömlum meiðslum alveg án þess að vera að taka nokkuð á (Kalla ekki að taka á að fara í blak 1x - 2x í viku). Kannski þess vegna en það er bara ekki tími...

Ég verð að játa það að þó að ég hafi mjög gaman af skólanum þá er ég farin að hlakka til að vera búin með áfangana og geta byrjað að vinna að lokaverkefninu mínu. Og fyrst ég mynntist á það þá verður það 30 einingar og skal því verða lokið næsta sumar. Búin að fá samþykkt af 2/3 (Bara eftir að ganga frá því formlega við Þorvald)launalaust leifi til að einbeyta mér alveg að því. Ætla bara að kenna í haust og vera til taks í algjörum neyðartilvikum.

Mikið óskaplega held ég að næsti vetur verði skemmtilegur!

sunnudagur, febrúar 10, 2008

Föstudagurinn ... langi 

Jæja nú ætla ég að skrifa því ég er að bíða eftir félaga mínum að mæta. Bara rúmum klukkutíma of seint.

En langar bara að shera með ykkur föstudeginum síðasta.
Byrjaði með því að lenda í því að það kemur maður sem ég er komin með upp í kok af og segir mér í óspurðum fréttum að hann hafi verið beðinn um að sjá um að þjónusta prentarana og ég "EIGI" að kenna honum á þá. Fyrir það fyrsta þá sauð verulega á mér og sagði honum að ég myndi ekki kenna honum neitt fyrr en ég fengi þessa beiðni frá einhverjum öðrum. Hann kom svo og röflaði í mér á korters fresti fyrstu 3 tíma dagsins.

Það var ákveðið að halda fund um þetta á miðvikudaginn næsta í framhaldinu. Þannig að ég verð líklega að þola röflið í honum þangað til. Jesus! hvað sumir hafa enga tilfinningu fyrir því þegar fólk vill ekki neitt með það hafa.

Síðan dundaði ég mér við að setja upp nýjan prentara og lagfæra hitt og þetta. Um klukkan 14:00 voru flest allir farnir af staðnum því það var búið að spá brjáluðu veðri. En ég var of sein að forða mér, því í staðin lenti ég í því að vera að vinna til klukkan 23:40 um kvöldið.

Rafmagnið í serverherberginu sló út ca. 6 sinnum. Og rafmagnið fór alveg einu sinni. Þar fyrir utan þá fór á flæða inn vatn með ljósleiðaralögnunum.
(TODO : Finna út hvaða brunnur lekur.)
Og það var ekkert smá magn af vatni. Ég mældi það ekki nákvæmlega en ég myndi giska á 1 l/sek.

Ég var sem sagt alltaf á rúntinum á milli staða á Hve í brjáluðu roki og hálku. Og í hvert skipti þurfti ég að komast niður tröppurnar í kjallaranum og prísa mig sæla yfir því að hafa ekki fótbrotið mig á því. Datt bara 3x og var samsvarandi rennandi blaut.

Um 23:40 þá hætti ég og fór að sofa. Því gámar, fellihýsi og hinar og þessar spítur voru farnar að fljúga um staðinn. Vildi ekki fá þetta í mig.

Ég var afskaplega þreytt þegar ég fór að sofa og vá hvað ég steinsvaf.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?